Willum Þór Willumsson var í byrjunarliði NEC Nijmegen er liðið gerði jafntefli við Sparta frá Rotterdam í hollensku úrvalsdeildinni.
Leikurinn byrjaði fyrir tveimur dögum síðan en hann var stoppaður eftir aðeins sex mínútur vegna snjókomu.
Leikurinn byrjaði fyrir tveimur dögum síðan en hann var stoppaður eftir aðeins sex mínútur vegna snjókomu.
Í kvöld byrjaði leikurinn svo aftur en hann var markalaus þegar flautað var til hálfleiks. Eftir klukkutíma leik skoraði Bruno Martins Indi, sem á að baki 36 landsleiki fyrir Holland, og kom Spörtu yfir.
NEC jafnaði hins vegar metin á 73. mínútu, stuttu eftir að Willum hafði farið af velli.
Willum gekk í raðir NEC í janúar frá Birmingham á Englandi, en liðið er sem stendur í þriðja sæti hollensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir



