Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
banner
   mið 18. febrúar 2026 22:48
Ívan Guðjón Baldursson
Hinrik skoraði - Eyþór úr leik í bikarnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Motherwell
Mynd: Anderlecht
Það voru nokkrir Íslendingar sem komu við sögu í leikjum dagsins víðsvegar um Evrópu.

Hinrik Harðarson var í byrjunarliði Odd sem lagði Strömsgodset að velli með tveimur mörkum gegn engu.

Hinrik skoraði seinna markið á 44. mínútu til að innsigla sigur í æfingaleik.

Júlíus Mar Júlíusson var þá í byrjunarliði Kristianstad sem hafði betur í æfingaleik gegn Ham-Kam. Hrannar Snær Magnússon byrjaði á bekknum hjá Kristiansund og var Viðar Ari Jónsson á varamannabekk Ham-Kam.

Eyþór Martin Vigerust Björgólfsson var þá í byrjunarliði Motherwell sem heimsótti Aberdeen í 16-liða úrslitum skoska bikarsins. Kjartan Már Kjartansson var ekki í hóp hjá Aberdeen.

Það var mikið að frétta í slagnum þar sem Eyþór og félagar léku manni færri stærsta hluta leiksins. Þeir misstu mann af velli með rautt spjald strax á þriðju mínútu en það jafnaðist í liðunum 20 mínútum síðar.

Annar leikmaður Motherwell fékk svo rautt spjald á 3. mínútu síðari hálfleiks og stóðu 10 leikmenn Aberdeen að lokum uppi sem sigurvegarar gegn 9 gestum frá Motherwell, lokatölur 2-0. Aberdeen mætir Dunfermline í 8-liða úrslitum.

Grimsby Town gerði jafntefli við Walsall í League Two en Jason Daði Svanþórsson var fjarverandi líkt og undanfarna mánuði.

Að lokum var Andrea Rut Bjarnadóttir í byrjunarliði Anderlecht sem gerði jafntefli við Waregem í efstu deild í Belgíu.

Þetta eru vonbrigði fyrir Anderlecht sem tapar stigum í titilbaráttunni. Andrea Rut og stöllur sitja í öðru sæti, fjórum stigum á eftir toppliði OH Leuven sem á leik til góða.

Odd 2 - 0 Strömsgodset
1-0 N. Kojo ('12)
2-0 Hinrik Harðarson ('44)

Kristianstad 2 - 1 Ham-Kam

Aberdeen 2 - 0 Motherwell

Grimsby 2 - 2 Walsall

Anderlecht 1 - 1 Waregem

Athugasemdir
banner