Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   mið 18. febrúar 2026 19:42
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin: Newcastle rúllaði yfir Qarabag
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Qarabag 1 - 6 Newcastle
0-1 Anthony Gordon ('3 )
0-2 Malick Thiaw ('8 )
0-3 Anthony Gordon ('32 , víti)
0-4 Anthony Gordon ('33 )
0-5 Anthony Gordon ('45+1, víti)
1-5 Elvin Cafarquliyev ('55 )
1-6 Jacob Murphy ('72 )

Newcastle United er svo gott sem búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir stórsigur á útivelli gegn Qarabag í dag.

Úrvalsdeildarfélagið gjörsamlega rúllaði yfir andstæðinga sína þar sem Anthony Gordon fór fremstur í flokki og skoraði fernu í fyrri hálfleik. Hann skrifaði sig á spjöld sögunnar með fernunni enda er hann fyrsti leikmaðurinn til að skora fernu í sama hálfleiknum í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Hann skoraði tvö mörk með nokkurra sekúndna millibili sem gæti verið annað met.

Staðan var 0-5 eftir svakalegan fyrri hálfleik þar sem Newcastle hefði hæglega getað skorað nokkur mörk til viðbótar, en hlutirnir róuðust niður í seinni hálfleik.

Qarabag sýndi flotta frammistöðu eftir leikhlé og minnkaði Elvin Cafarquliyev muninn á 55. mínútu. Aðstoðardómarinn flaggaði hann rangstæðan en eftir athugun í VAR var markið látið standa. Í endursýningu mátti þó ekki sjá að Aserinn hafi verið réttstæður.

Skot Jacob Murphy fór af varnarmanni og í netið á 72. mínútu svo lokatölur urðu 1-6 fyrir Newcastle sem er í draumastöðu fyrir heimaleikinn.
Athugasemdir
banner
banner