Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   mið 18. febrúar 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vardy fékk símtal frá gömlum liðsfélaga
Jamie Vardy fagnar hér einu af fjölmörgum mörkum sínum með Leicester.
Jamie Vardy fagnar hér einu af fjölmörgum mörkum sínum með Leicester.
Mynd: EPA
Christian Fuchs ákvað að demba sér út í þjálfun fljótlega eftir að skórnir fóru upp á hillu.

Fuchs, sem varð Englandsmeistari með Leicester árið 2016, er í dag stjóri Newport County sem leikur í D-deild enska boltans. Hann var ráðinn þangað í nóvember síðastliðnum.

Markmiðið hjá Newport County er að halda sér uppi en liðið er sem stendur á botni D-deildarinnar.

Fuchs skoðaði ýmsar leiðir til að styrkja liðið í janúar en hann hefur opinberað það að hann hringdi í gamlan liðsfélaga sinn, Jamie Vardy, sem spilar í dag með Cremonese á Ítalíu.

„Ég hringdi í Vardy. Það var meira grín en annað. Ég vissi svarið áður en ég hringdi. Þetta var stutt samtal," sagði Fuchs en Vardy raðaði inn mörkum þegar Leicester varð Englandsmeistari 2016. Hann hefur gert fimm mörk í 21 leik frá því hann skipti yfir til Cremonese síðasta sumar.
Athugasemdir
banner
banner