Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   þri 17. febrúar 2026 16:30
Kári Snorrason
Tudor: Staðan óásættanleg og enginn tími fyrir afsakanir
Igor Tudor stýrir Tottenham út tímabilið.
Igor Tudor stýrir Tottenham út tímabilið.
Mynd: EPA
Igor Tudor, nýráðinn bráðabirgðarstjóri Tottenham, segir engann tíma fyrir afsakanir fyrir Tottenham og að hann muni gera allt sem í sínu valdi stendur til að rétta skútuna við.

Króatinn tekur við liðinu af Thomas Frank sem var látinn taka poka sinn í síðustu viku. Tottenham situr í 16. sæti deildarinnar, aðeins fimm stigum frá falli.

„Ég kem hingað vitandi að staðan er ekki auðveld. Það er enginn tími fyrir afsakanir. Staða félagsins er óásættanleg. Það getur enginn stuðningsmaður samþykkt þetta og við erum meðvituð um það,“ sagði Tudor við heimasíðu Tottenham.

Meiðsli hafa herjað á herbúðir Tottenham, alls eru ellefu leikmenn frá vegna meiðsla. Sá króatíski segir það jafnframt vera verðugt verkefni að byggja upp sjálfstraustið hjá liðinu.

„Staðan er líka slæm vegna þess að við erum með marga frá vegna meiðsla. Fyrsta verkefnið er að gefa liðinu sjálfstraust og hugrekki.“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner