Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
banner
   þri 17. febrúar 2026 16:57
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Galatasaray og Juventus: McKennie fölsk nía
Mynd: EPA
Galatasaray og Juventus mætast klukkan 17:45 í fyrri viðureign liðanna í umspili Meistaradeildarinnar. Barist er um sæti í 16-liða úrslitum en seinni leikurinn verður 25. febrúar.

Það áhugaverðasta við byrjunarlið Juve er að bandaríski miðjumaðurinn Weston McKennie er að spila sem 'fölsk nía'. Þeir Kenan Yildiz og Francisco Conceicao eru á köntunum.

Khephren Thuram var ekki með vegna meiðsla í 3-2 tapinu gegn Inter í ítölsku A-deildinni en er búinn að ná sér og kemur inn í byrjunarliðið.

Galatasaray: Ugurcan Cakir; Sallai, Sanchez, Abdulkerim Bardakci, Jakobs; Torreira, Gabriel Sara; Baris Alper Yilmaz, Yunus Akgun, Lang; Osimhen

(Varamannabekkur: Batuhan Sen, Gunay Guvenc, Icardi, Sané, Eren Elmali, Gundogan, Ahmed Kutucu, Asprilla, Kaan Ayhan, Singo, Boey)

Juventus: Di Gregorio; Kalulu, Bremer, Kelly, Cambiaso; Koopmeiners, Locatelli, Thuram; Conceicao, McKennie, Yildiz

(Varamannabekkur: Perin, Pinsoglio, Gatti, Zhegrova, Boga, Adzic, Kostic, Openda, Miretti, Cabal)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner