Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   mið 18. febrúar 2026 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterling ekki meðal þeirra allra launahæstu í Hollandi
Raheem Sterling.
Raheem Sterling.
Mynd: EPA
Raheem Sterling gekk á dögunum í raðir hollenska félagsins Feyenoord á frjálsri sölu.

Sterling er 31 árs og á að baki 82 landsleiki fyrir England. Á ferlinum hefur hann spilað með Liverpool, Manchester City, Chelsea og Arsenal.

Hann lék síðast með Chelsea, en hann var þar algjörlega í frystinum. Sterling var einn launahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar með 325 þúsund pund í vikulaun hjá Lundúnafélaginu en samningur hans átti að renna út á næsta ári.

Hann komst að samkomulagi við Chelsea um starfslokagreiðslu og fékk þar eflaust góða upphæð. Hann átti um 20 milljónir punda inni hjá félaginu en Chelsea samdi við hann um að borga honum aðeins minna til að losa samninginn fyrr.

Það gerði Sterling kleift að semja við Feyenoord en samkvæmt Capology er hann núna í 23. sæti yfir launahæstu leikmenn hollenska boltans. Hann er með talsvert lægri laun en hann var með hjá Chelsea en hann er sagður þéna um 22 þúsund pund í vikulaun hjá Feyenoord.

Launin eru nú líklega ekki aðalatriðið hjá Sterling sem hefur þénað býsna mikið síðustu árin.
Athugasemdir
banner
banner