Aron Ingi Magnússon hefur ekkert spilað með Þór á undirbúningstímabilinu en hann hefur glímt við meiðsli í nára sem hrjáðu hann einnig á síðasta tímabili.
Aron var í stóru hlutverki hjá Þór í fyrra og hjálpaði liðinu að vinna Lengjudeildina. Hann er 21 árs miðjumaður sem skoraði tvö mörk og lagði upp þrjú í 16 leikjum i Lengjudeildinni.
Aron var í stóru hlutverki hjá Þór í fyrra og hjálpaði liðinu að vinna Lengjudeildina. Hann er 21 árs miðjumaður sem skoraði tvö mörk og lagði upp þrjú í 16 leikjum i Lengjudeildinni.
Ákveðið var að Aron færi ekki í aðgerð vegna meiðslanna og batinn hefur verið hægur. Hann segir þó að hann sé núna farinn að finna mun á sér.
„Staðan á mér hægt og rólega að verða aðeins betri. Ég er byrjaður í bolta og vonast til að verða byrjaður að æfa eitthvað með liðinu í æfingaferðinni í byrjun mars. Vonandi næ ég að spila svo í lok mars," segir Aron við Fótbolta.net.
Fyrsti leikur Þórs í Bestu deildinni verður gegn Val á útivelli 12. apríl. Liðið spilar fyrst í 32-liða úrslitum u.þ.b. viku áður.
Í leiknum gegn Gróttu í Lengjubikarnum vantaði einnig Sigfús Fannar Gunnarsson og Fannar Daða Malmquist og samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net er styttra í að þeir snúi aftur á völlinn.
Athugasemdir

