Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   mið 18. febrúar 2026 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía í dag - Fabregas gegn Milan
Cesc Fabregas.
Cesc Fabregas.
Mynd: EPA
Það er vægast sagt áhugaverður leikur í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem AC Milan tekur á móti Como á San Siro.

Þetta er síðasti leikurinn í 25. umferð deildarinnar.

Cesc Fabregas og lærisveinar hans í Como hafa vakið mikla athygli á tímabilinu en þeir sitja í sjöunda sæti deildarinnar. Como getur með sigri í kvöld hoppað upp fyrir Atalanta og fært sig nær Meistaradeildarsætunum.

Þessi leikur er afar mikilvægur fyrir Milan sem er í öðru sæti, átta stigum á eftir nágrönnum sínum í Inter. Til þess að eiga möguleika á að halda í við Inter, þá er sigur nauðsynlegur.

Hægt verður að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu á Livey.

miðvikudagur 18. febrúar

Ítalía: Sería A
19:45 Milan - Como


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 27 22 1 4 64 21 +43 67
2 Milan 27 16 9 2 43 20 +23 57
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 27 16 3 8 37 19 +18 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 27 11 6 10 36 32 +4 39
9 Sassuolo 27 11 5 11 34 36 -2 38
10 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
11 Lazio 27 8 10 9 26 27 -1 34
12 Parma 27 8 9 10 20 32 -12 33
13 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
14 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
15 Genoa 27 6 9 12 32 39 -7 27
16 Fiorentina 27 5 9 13 30 42 -12 24
17 Cremonese 27 5 9 13 21 38 -17 24
18 Lecce 27 6 6 15 18 36 -18 24
19 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
20 Verona 27 2 9 16 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner
banner