Giorgio Chiellini og Damien Comolli, stjórnarmenn Juventus, hafa báðir fengið bann vegna mótmæla þeirra í og eftir leik Juventus gegn Inter um síðustu helgi.
Leikurinn endaði með 3-2 sigri Inter og voru Juventus-menn vægast sagt ósáttir út í dómgæslu leiksins. Federico La Penna, dómari leiksins, rak m.a. Pierre Kalulu, leikmann Juventus, af velli eftir augljósa dýfu Alessandro Bastoni. Ásamt því töldu þeir bæði mörk Inter hafa verið ólögleg.

Chiellini og Comolli voru æfir og hafa meðal annars kallað eftir afsögn Gianluca Rocchi sem sér um að niðurröðun dómara á leiki í Serie A. Þá sagði Chiellini skammast sín fyrir að vera hluti af ítölsku deildinni.
Damien Comolli var dæmdur í bann til 31. mars og sektaður um 15 þúsund evrur. Í dómnum segir að það sé fyrir að sýna dómara leiksins, ógnandi og árásargjarna framkomu í hálfleik eftir að Kalulu var rekinn af velli.
Giorgio Chiellini fékk bann til 27. febrúar fyrir ósæmileg mótmæli í göngum leikvangsins.
Athugasemdir