Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 22:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu atvikið sem allir eru að tala um
Prestianni og Vinicius.
Prestianni og Vinicius.
Mynd: EPA
Það kom upp rosalegt atvik í leik Benfica og Real Madrid í Meistaradeildinni í kvöld.

Eftir að Vinicius Junior skoraði það sem reyndist vera sigurmark Real Madrid þá fór allt í háaloft.

Vinicius steig dans við hornfánann og stuðningsmenn Benfica voru reiðir. Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, sagði svo eitthvað sem varð til þess að Vinicius fór beint til dómarans og neitaði að spila áfram.

Prestianni hélt treyju sinni fyrir munninum þegar hann sagði eitthvað við Vinicius.

„Af hverju ætti drengurinn að setja treyjuna yfir munninn ef hann er að segja 'góðan daginn'. Vonandi fær hann viðeigandi refsingu," sagði landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson um atvikið á Sýn Sport.

Á X-reikningnum Touchline sem er með 1,5 milljónir fylgjenda er sagt að Vinicius hafi tjáð dómaranum það að hann hafi verið kallaður „api" sem má túlka sem kynþáttafordóma.

Leikurinn var stöðvaður í tíu mínútur og Vinicius neitaði að spila. Hann kláraði svo leikinn.

Hægt er að sjá myndbandinu af atvikinu hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner