Enskir fjölmiðlar greina frá því að Leeds United, Aston Villa og Newcastle United séu meðal félagsliða sem hafa áhuga á markverðinum James Trafford hjá Manchester City.
Trafford er ósáttur með að vera varamarkvörður hjá Man City eftir að félagið keypti hann aftur til sín síðasta sumar. Hlutverk hans átti að vera að berjast við Ederson um byrjunarliðssæti til að taka á endanum við markmannsstöðunni, en félagið seldi síðan brasilíska markvörðinn og festi kaup á Gianluigi Donnarumma.
City borgaði 31 milljón punda til að kaupa Trafford úr röðum Burnley síðasta sumar. Burnley hafði samþykkt sama tilboð frá Newcastle en City var með sérstakt samkomulag við Burnley svo stórveldið fékk að jafna tilboðið.
Burnley keypti Trafford upprunalega úr röðum Man City sumarið 2023, fyrir 15 milljónir punda. City vildi ekki selja hann svo stjórnendur félaganna sömdu um forkaupsrétt fyrir City í framtíðinni, sem félagið nýtti sér í fyrra.
15.02.2026 09:30
Trafford: Ekki það sem ég bjóst við í byrjun tímabils
Athugasemdir




