Meistaradeildin heldur áfram að rúlla, umspilið um að komast í 16-liða úrslit heldur áfram í kvöld. Bodö/Glimt tekur á móti Inter í kuldanum í Noregi.
Borgin Bodö er staðsett rétt norðan heimskautsbaugs og þar hefur verið mikil snjókoma. Starfsmenn og sjálfboðaliðar Bodö/Glimt hafa þurft að moka snjó dag og nótt í aðdraganda leiksins.
Borgin Bodö er staðsett rétt norðan heimskautsbaugs og þar hefur verið mikil snjókoma. Starfsmenn og sjálfboðaliðar Bodö/Glimt hafa þurft að moka snjó dag og nótt í aðdraganda leiksins.
Snjóskaflar hafa myndast og margir lagt hönd á plóg til að Aspmyra leikvangurinn verði leikhæfur í kvöld. Samkvæmt norskum fjölmiðlum hafa 80 tonn af snjó verið mokuð af vellinum.
Völlurinn er með gervigrasi, eitthvað sem er nauðsynlegt á þessu svæði.
Bodö/Glimt hefur náð mögnuðum árangri í Evrópu og vann Manchester City og Atletico Madrid á leið sinni í umspilið. Það er allt klár fyrir stórleik kvöldsins sem hefst klukkan 20:00.
Athugasemdir


