Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 17:10
Kári Snorrason
Sjáðu það helsta úr franska: PSG missti toppsætið
Lens er á toppi deildarinnar.
Lens er á toppi deildarinnar.
Mynd: EPA
Lens er komið á topp frönsku deildarinnar á nýjan leik eftir að hafa unnið afar sannfærandi 5-0 sigur á Paris FC um helgina.

PSG var á toppnum fyrir umferð, en liðið missteig sig á föstudaginn er það tapaði óvænt 3-1 gegn Rennes. Evrópumeistararnir eru nú einu stigi á eftir Lens.

Hákon Arnar Haraldsson byrjaði er Lille fék Brest í heimsókn en leikar enduðu með 1-1 jafntefli. Hákon og félagar eru án sigurs í síðustu sex deildarleikjum.

Sjáðu markapakka Livey frá 22. umferð Ligue 1 í spilaranum hér að neðan.




Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner