Það eru tveir leikir á dagskrá í Lengjubikar karla þennan miðvikudaginn.
Fyrri leikurinn er í Kópavogi þar sem HK tekur á móti Vestra í Kórnum. Þessi leikur er í riðli 1 þar sem HK er með fjögur stig eftir tvo leiki. Á meðan hefur Vestri þrjú stig.
Fyrri leikurinn er í Kópavogi þar sem HK tekur á móti Vestra í Kórnum. Þessi leikur er í riðli 1 þar sem HK er með fjögur stig eftir tvo leiki. Á meðan hefur Vestri þrjú stig.
Svo hálftíma seinna verður flautað á í Boganum á Akureyri þar sem Þór og Völsungur spila í nágrannaslag. Þór er með fjögur stig eftir tvo leiki í riðli 2 á meðan Völsungur er að spila sinn fyrsta leik í mótinu.
Leikir dagsins:
18:00 HK - Vestri (Kórinn)
18:30 Þór - Völsungur (Boginn)
Athugasemdir



