Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 15:30
Kári Snorrason
Sextán ára og rúmir 202 sentímetrar - „Minnir á Courtois“
Marten á að baki sex landsleiki fyrir unglingalandsliðin.
Marten á að baki sex landsleiki fyrir unglingalandsliðin.
Mynd: Aðsend
Marten skrifaði undir þriggja ára samning við Bröndby.
Marten skrifaði undir þriggja ára samning við Bröndby.
Mynd: Bröndby
Úr leik með 3. flokki HK.
Úr leik með 3. flokki HK.
Mynd: HK
Hinn stóri og stæðilegi markvörður Marten Leon Jóhannsson hefur gengið í raðir danska stórliðsins Bröndby frá uppeldisfélaginu HK.

Marten er fæddur árið 2010 og hefur verið undir smásjá Bröndby undanfarið ár. Hann gengur formlega í raðir Bröndby í júlí þegar félagaskiptaglugginn opnar.

Danski miðillinn Tipsbladet ræddi við Þorleif Óskarsson, þjálfara 3. flokks karla hjá HK, um markvörðinn efnilega.

„Hann var 202,5 sentímetrar samkvæmt síðustu mælingum og hann getur enn vaxið. Þannig að hann er stór markvörður en jafnframt mjög hreyfanlegur. Við höfum tekið nokkur sprettpróf hjá okkur í 3. flokki og Marten vann bæði tíu og fjörutíu metra sprettina, þannig að hann er mjög fljótur í þokkabót.“

Minnir á Courtois
Hversu langt getur hann náð?
„Hann minnir mann á Thibaut Courtois. Hann getur náð alla leið ef hann fær rétta þjálfun og er í réttu umhverfi. Sem markvörður snýst þetta mikið um sjálfstraust og þess vegna þarf hann stuðning, þegar vel gengur og þegar hann gerir mistök.

Ef hann fær þann stuðning sem hann þarf eru takmörkin nánast engin. Á Íslandi kalla allir hann skrímslið, því þegar hann er í markinu er erfitt að skora. Auðvitað fá menn á sig mörk en hann er mjög góður.“


Framtíðarlandsliðsmarkvörður
Já, ég held að þarna sé framtíðarlandsliðsmarkvörður á ferðinni. Núna eru þeir Elías Rafn Ólafsson og Hákon Rafn Valdimarsson að berjast um stöðurnar dag en Marten er betri í fótunum.

Hann er með góðar hreyfingar sem gera vörslurnar auðveldari. Þegar hann styrkist verður hann með enn meiri sprengikraft og með réttri þjálfun getur hann orðið næsti aðalmarkvörður landsliðsins.“

„Hann mjög góður í fótunum, hann er lipur og með nákvæmar langar sendingar, getur dreift boltanum vel á milli lína. Þegar boltinn er á jörðinni getur hann hæglega sparkað honum fimmtíu metra og með boltann í höndunum getur hann sparkað honum frá einum vítateig yfir á hinn.“
segir Þorleifur að lokum.
Athugasemdir
banner
banner