Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   mið 18. febrúar 2026 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin í dag - Langt ferðalag hjá Newcastle
Dan Burn og félagar spila í Aserbaídsjan í kvöld.
Dan Burn og félagar spila í Aserbaídsjan í kvöld.
Mynd: EPA
Meistaradeildin heldur áfram að rúlla, umspilið um að komast í 16-liða úrslit hófst í gær og heldur áfram í kvöld.

Fyrsti leikur dagsins er í Aserbaídsjan þar sem Newcastle er í heimsókn hjá Qarabag.

Svo fara þrír leikir af stað klukkan 20:00. Bodö/Glimt tekur á móti Inter í kuldanum í Noregi, Club Brugge spilar við Atletico Madrid og Olympiakos mætir Bayer Leverkusen.

Þessi lið eru að berjast um að komast í 16-liða úrslitin en um fyrri leiki liðanna er að ræða.

Meistaradeildin
17:45 Qarabag - Newcastle
20:00 Bodö/Glimt - Inter
20:00 Club Brugge - Atletico Madrid
20:00 Olympiakos - Leverkusen
Athugasemdir
banner
banner