Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
banner
   mið 18. febrúar 2026 22:03
Ívan Guðjón Baldursson
England: Arsenal tapaði stigum gegn botnliðinu
Mynd: EPA
Wolves 2 - 2 Arsenal
0-1 Bukayo Saka ('5 )
0-2 Piero Hincapie ('57 )
1-2 Hugo Bueno ('61 )
2-2 Tom Edozie ('94)

Botnlið Wolves tók á móti toppliði Arsenal í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og skoraði Bukayo Saka eftir fimm mínútna leik. Hann skoraði þá sjaldgæft skallamark eftir flotta fyrirgjöf frá Declan Rice. Þetta var afar langþráð mark fyrir Saka, hans fyrsta síðan í byrjun desember.

Arsenal stjórnaði ferðinni í fyrri hálfleik og komst nálægt því að tvöfalda forystuna en tókst ekki. Piero Hincapié náði að skora næsta mark eftir að hafa sloppið í gegn í síðari hálfleik en aðstoðardómarinn flaggaði. Markinu var þó leyft að standa eftir athugun í VAR, svo staðan var orðin 2-0.

Skömmu síðar minnkaði Hugo Bueno muninn með glæsilegu skoti rétt utan vítateigs, en hægt er að setja spurningarmerki við varnarleik Hincapié og staðsetningu David Raya í markinu.

Arsenal tókst ekki að gera mikið í lokuðum síðari hálfleik. Gestirnir frá London fengu þó bestu færin á tíðindalitlum lokakafla.

Úlfarnir ógnuðu ekki mikið og stefndi allt í 1-2 sigur fyrir Arsenal þar til á lokamínútum uppbótartímans, þegar Tom Edozie nýtti sér afdrifarík mistök til að jafna metin. David Raya og Gabriel Magalhaes fóru upp í sömu fyrirgjöf og enduðu á að vera fyrir hvor öðrum, svo boltinn datt fyrir Edozie í dauðafæri. Lokatölur 2-2.

Arsenal er núna með fimm stiga forystu á Manchester City, sem á leik til góða.

Úlfarnir eru aðeins með 10 stig, heilum 17 stigum frá öruggu sæti í deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner