Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
banner
   mið 18. febrúar 2026 23:17
Ívan Guðjón Baldursson
Arteta: Við eigum þetta skilið
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mikel Arteta var svekktur eftir 2-2 jafntefli hjá Arsenal á útivelli gegn botnliði Wolves í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Þetta jafntefli er mikill skellur fyrir Arsenal sem er núna með fimm stiga forystu í titilbaráttunni en getur misst hana niður í tvö stig þegar Manchester City spilar leikinn sinn til góða.

Arsenal komst í tveggja marka forystu en slök frammistaða í síðari hálfleik gerði það að verkum að Úlfarnir náðu jafntefli.

„Það er erfitt að samþykkja þetta en við eigum þetta skilið. Við vorum ömurlegir í seinni hálfleiknum, þetta var ekki frammistaða sem sæmir ensku úrvalsdeildinni og okkur var refsað," sagði Arteta.

„Það var alltof margt að klikka hjá okkur í þessum leik. Það er of mikið af tilfinningum núna en við þurfum að læra af þessu útaf því að við áttum þetta skilið. Þegar við erum að spila á þessu gæðastigi og það er svona mikið af væntingum, þá verðum við að gera betur.

„Þetta var ekki nógu gott hjá okkur og raunveruleikinn er sá að við erum ekki búnir að vera nægilega stöðugir undanfarna mánuði. Við erum á erfiðum tímapunkti og þurfum að standa upp. Við verðum að sanna hversu mikið við viljum þennan titil og hversu góðir við erum. Við verðum að standa upp."


Næsti leikur Arsenal er á útivelli gegn Tottenham og svo eru leikir framundan gegn Chelsea, Brighton og Everton þar á eftir.

„Útileikurinn gegn Spurs er fullkominn leikur til að sýna hversu mikið við viljum þennan titil og hversu góðir við erum. Við verðum að leyfa verkunum að tala."
Athugasemdir
banner