Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
banner
   mið 18. febrúar 2026 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Wolves og Arsenal: Raya og Gabriel fá fimmur
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Botnlið Wolves náði jafntefli gegn toppliði Arsenal er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Sky Sports er búið að gefa leikmönnum einkunnir og var Hugo Bueno besti maður vallarins.

Bueno fær 8 fyrir sinn þátt í frábærri endurkomu Úlfanna en nafni hans Santiago Bueno átti mjög góðan leik í varnarlínunni og fær 7 í einkunn.

Í liði Arsenal voru markaskorararnir Piero Hincapié og Bukayo Saka metnir sem bestir með 7 í einkunn á meðan hálft liðið fékk 5 fyrir sína frammistöðu, þar á meðal David Raya og Gabriel sem gáfu Úlfunum jöfnunarmarkið seint í uppbótartíma.

Wolves: Sa (6), Tchatchoua (5), Mosquera (6), S.Bueno (7), Krejci (6), H.Bueno (8), Andre (6), A.Gomes (5), Mane (6), Bellegarde (6), Armstrong (6).
Varamenn: Arokodare (6), R.Gomes (7)

Arsenal: Raya (5), Timber (6), Saliba (5), Gabriel (5), Hincapie (7), Zubimendi (6), Rice (6), Saka (7), Madueke (5), Martinelli (6), Gyokeres (5).
Varamenn: Jesus (5), Eze (5), Trossard (6)
Athugasemdir
banner