Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   mið 18. febrúar 2026 11:10
Elvar Geir Magnússon
Óskar Borgþórs fer til Mexíkó en ekki Valdimar
Óskar Borgþórsson, leikmaður Víkings.
Óskar Borgþórsson, leikmaður Víkings.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valdimar hefur dregið sig úr hópnum.
Valdimar hefur dregið sig úr hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Borgþórsson hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn sem mætir Mexíkó í vináttulandsleik ytra í lok mánaðarins.

Óskar kemur inn í hópinn í stað liðsfélaga síns, Valdimars Þórs Ingimundarsonar, sem hefur dregið sig úr hópnum.

Leikurinn er utan hefðbundins landsleikjaglugga og því er hópurinn að mestu skipaður leikmönnum sem eru á mála hjá íslenskum félagsliðum.

Alls hafa verið gerðar þrjár breytingar á hópnum frá því hann var tilkynntur. Áður höfðu Aron Sigurðarson og Aron Elís Þrándarson dregið sig úr hópnum en í þeirra stað komu Jóhann Berg Guðmundsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson.

Leikurinn fer fram á Corregidora Stadium í Querataro og hefst kl. 02:00 að íslenskum tíma aðfaranótt 26. febrúar. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn í opinni dagskrá.

Hópurinn:
Anton Ari Einarsson - Breiðablik
Viktor Freyr Sigurðsson - Fram
Höskuldur Gunnlaugsson - Breiðablik
Karl Friðleifur Gunnarsson - Víkingur R.
Damir Muminovic - Grindavík
Hans Viktor Guðmundsson - KA
Guðmundur Kristjánsson - Stjarnan
Guðmundur Þórarinsson - ÍA
Baldur Kári Helgason - FH
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R.
Haukur Andri Haraldsson - ÍA
Kolbeinn Þórðarson - IFK Göteborg
Daníel Hafsteinsson - Víkingur R.
Birnir Snær Ingason - Stjarnan
*Hallgrímur Mar Steingrímsson - KA
*Óskar Borgþórsson - Víkingur R.
Ágúst Orri Þorsteinsson - Breiðablik
Helgi Guðjónsson - Víkingur R.
Emil Atlason - Stjarnan
*Jóhann Berg Guðmundsson
Athugasemdir
banner
banner