Kylian Mbappe, stórstjarna Real Madrid, segir að Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, hafi kallað Vinicius Junior „apa" að minnsta kosti fimm sinnum í leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld.
Hann segir að Prestianni eigi aldrei að fá að spila aftur í Meistaradeildinni.
Hann segir að Prestianni eigi aldrei að fá að spila aftur í Meistaradeildinni.
Vinicius skoraði eina mark leiksins en allt varð brjálað eftir að hann skoraði. Vinicius steig dans við hornfánann og stuðningsmenn Benfica voru reiðir. Prestianni lét svo ummæli falla sem urðu til þess að Vinicius fór beint til dómarans og neitaði að spila áfram.
Prestianni hélt treyju sinni fyrir munninum þegar hann lét ummælin falla. Mbappe segir að Prestianni hafi kallað Vinicius „apa" sem eru greinilega kynþáttafordómar.
„Prestianni kallaði Vinicius apa fimm sinnum. Ég sá þetta greinilega," sagði Mbappe sem lét Prestianni heyra það á meðan leik stóð.
„Þú ert fjandans rasisti, þú ert fjandans rasisti," sagði Mbappe en eftir leik bætti hann jafnframt við að Argentínumaðurinn ætti aldrei aftur að spila í Meistaradeildinni.
„Þetta er alvarlegt mál og ég vona að UEFA bregðist við."
Mbappe to Prestianni
— WolfRMFC (@WolfRMFC) February 17, 2026
“You are a f**king racist”
“You are a f**king racist” pic.twitter.com/VuN1sA4mce
Athugasemdir


