Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   mið 18. febrúar 2026 09:53
Elvar Geir Magnússon
„Hugleysingjar“ - Benfica sakar stjörnur Real Madrid um að ljúga
Allt ætlaði um koll að keyra á Ljósvangi í Lissabon.
Allt ætlaði um koll að keyra á Ljósvangi í Lissabon.
Mynd: EPA
Mourinho og Vinicius.
Mourinho og Vinicius.
Mynd: EPA
Prestianni og Vinicius Jr í leiknum.
Prestianni og Vinicius Jr í leiknum.
Mynd: EPA
Vini ræðir við dómarann.
Vini ræðir við dómarann.
Mynd: EPA
Portúgalska félagið Benfica segir að ásakanir í garð leikmanns síns, hins argentínska Gianluca Prestianni, séu lygi. Vinicius Jr, stjarna Real Madrid, sakar Prestianni um að hafa kallað sig „apa“.

Leikur Benfica og Real Madrid í Meistaradeildinni í gær var stöðvaður í tíu mínútur eftir að Vinicius hljóp upp að dómaranum Francois Letexier og sagðist hafa orðið fyrir kynþáttafordómum.

Eftir að Vinicius hafði skorað eina mark leiksins og fagnað fyrir framan stúkuna þá sagði Prestianni eitthvað við hann en setti treyjuna yfir munn sinn þegar hann gerði það, svo ómögulegt er með varalestri að greina hvað hann sagði.

Kylian Mbappe tekur undir framburð liðsfélaga síns og segir að hinn tvítugi Prestianni hafi verið með kynþáttaníð.

Settu inn færslu um miðja nótt
Klukkan 2 í nótt setti Benfica færslu inn á samfélagsmiðla með myndbandi af atvikinu og dregur það í efa að leikmenn Real Madrid hafi heyrt eitthvað hvað Prestianni á að hafa sagt í ljósi fjarlægðar milli leikmannana.

Benfica hefur hlotið harða gagnrýni frá fótboltaáhugafólki fyrir þessi viðbrögð sín.

Jose Mourinho hefur gagnrýnt Vinicius fyrir það hvernig hann fagnaði markinu og segir hann hafa ögrað stuðningsmönnum Benfica. Hann vildi lítið tjá sig um ásakanirnar um kynþáttaníð. Frásögnum Vinicius og Prestianni ber ekki saman.

„Ég talaði við þá báða og þeir sögðu mér ólíka hluti. Ég ætla ekki að trúa öðrum frekar en hinum. Ég ætla að vera sjálfstæður," segir Mourinho.

Hvað segir Vinicius?
„Rasistar eru hugleysingjar. Þeir þurfa að toga treyjuna yfir munninn á sér til að sýna hvað þeir eru veikir," skrifaði Vinicius á Instagram.

„En þeir njóta verndar frá öðrum sem hafa það hlutverk að refsa þeim. Ekkert sem gerðist í dag er nýtt í mínu lífi eða eitthvað sem liðið mitt hefur ekki kynnst áður."

„Ég fékk gult spjald fyrir að fagna marki. Ég skil enn ekki af hverju."

Hvað segir Prestianni?
Prestianni neitar að hafa kallað Vinicius apa og Benfica styður frásögn leikmanns síns.

„Ég vil koma því á hreint að ég var aldrei með kynþáttaníð í garð Vini Jr. Því miður misskildi hann hvað hann hélt að hann hefði heyrt. Ég var aldrei með kynþáttafordóma og þykir það leitt að ég hafi fengið hótanir frá leikmönnum Real Madrid," skrifaði Prestianni á samfélagsmiðla.

UEFA hefur gefið út að málið sé til skoðunar og verið að fara yfir öll gögn og skýrslur eftir leikinn. Sambandið muni ekki tjá sig frekar að svo stöddu.

Eins og áður sagði þá vann Real Madrid 1-0 útisigur í leiknum en liðin mætast aftur í næstu viku á Spáni. Sigurliðið í einvíginu kemst í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Færslan sem Benfica setti inn í nótt

Athugasemdir
banner
banner
banner