Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
banner
   þri 17. febrúar 2026 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Búinn að finna sér nýtt félag eftir tímann á Íslandi
Marko Vardic.
Marko Vardic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Marko Vardic hefur skrifað undir samning við Chania í Grikklandi. Félagið spilar í næst efstu deild gríska fótboltans en Vardic var þar kynntur til leiks í dag.

Vardic yfirgaf ÍA seint á síðasta ári eftir að hafa spilað þar við góðan orðstír í tvö ár.

Vardic er þrítugur slóvenskur miðjumaður sem kom fyrst til Íslands fyrir tímabilið 2023 þar sem hann spilaði með Grindavík í Lengjudeildinni. Hann spilaði 21 leik með ÍA 2024 og 25 leiki í fyrra.

„Hér leið mér eins og heima hjá mér. Ég kynntist fólki sem verða vinir mínir fyrir lífstíð. Það voru hæðir og lægðir en þegar ég horfi til baka þá óx ég sem leikmaður og einstaklingur," sagði Vardic við Fótbolta.net um tímann á Íslandi.

Hann sagðist hafa fengið tilboð frá félögum úr Bestu deildinni en ákvað að róa á önnur mið.
Athugasemdir
banner
banner