Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
banner
   þri 17. febrúar 2026 23:15
Elvar Geir Magnússon
Mourinho í banni í endurkomunni á Bernabeu
Francois Letexier sýnir Jose Mourinho rauða spjaldið.
Francois Letexier sýnir Jose Mourinho rauða spjaldið.
Mynd: EPA
Real Madrid fer með gott veganesti heim frá Lissabon eftir að hafa unnið 1-0 útisigur í fyrri leik sínum gegn Benfica í umspili Meistaradeildarinnar.

Það var mikill hiti í leiknum og eins og oft áður var Jose Mourinho, stjóri Benfica, ósáttur við dómgæsluna. Hann fékk tvö gul spjöld á 85. mínútu fyrir mótmæli og þar með rautt.

Hann verður því í leikbanni í seinni leiknum, þegar hann heimsækir sinn gamla heimavöll Santiago Bernabeu. Mourinho verður í stúkunni í þeim leik.

Það var rafmagnað andrúmsloft á leiknum í kvöld en Vinicius Junior, sem skoraði eina markið, sakar mótherja sinn um að hafa verið með kynþáttaníð.
Athugasemdir
banner
banner