Breiðablik tekur á móti Häcken í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópubikarsins klukkan 18:00 í kvöld. Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli.
Fyrri leikurinn endaði með stórsigri sænska liðsins, 7-0, í Gautaborg. Það er því svo gott sem öruggt að Häcken fer áfram í undanúrslitin. Landsliðskonurnar Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir eru í byrjunarliði sænsku meistaranna.
Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu. Ketelyn Duong sem gekk í raðir Blika nýlega kemur inn á miðjuna og Helga Rut Einarsdóttir (2007) byrjar í hjarta varnarinnar. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir og Sunna Rún Sigurðardóttir taka sér sæti á bekknum.

Lestu um leikinn: Breiðablik 0 - 2 Häcken
Byrjunarlið Breiðabliks
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
3. Elísa Viðarsdóttir
4. Elín Helena Karlsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir
8. Katelyn Duong
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
24. Helga Rut Einarsdóttir
27. Barbára Sól Gísladóttir
30. Edith Kristín Kristjánsdóttir
Athugasemdir