Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   mið 28. maí 2025 22:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HK fær Hollending í glugganum
Lengjudeildin
Mynd: Harkemase Boys
Hollenskur sóknarmaður gengur til liðs við HK þegar sumarglugginn opnar 17. júlí.

Sá heitir Bart Kooistra og kemur frá Harkemase Boys í heimalandinu. Hann hefur verið hjá Harkemase síðan í janúar og skoraði fjögur mörk í níu leikjum. Þar á undan var hann í rúm fjögur ár í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.

Hann fór á reynslu hjá HK og heillaði menn í Kópavoginum sem stukku á tækifærið.

HK er í 8. sæti með fimm stig eftir fjórar umferðir í Lengjudeildinni en liðið féll úr Bestu deildinni síðasta sumar.
Athugasemdir