Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
   lau 29. júlí 2023 19:30
Sölvi Haraldsson
Dean Martin: Þetta var frábær liðssigur
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta var frábær liðssigur. Við unnum fyrir honum. Við lentum 1-0 undir og komum til baka. Frábær tímasetning til að skora. Síðan ákvöddum við bara að keyra á þetta í seinni hálfleik. Þetta var frábær leikur hjá öllu liðinu.“ sagði Dean Martin eftir 4-2 sigur á Fjölni í dag.


Lestu um leikinn: Fjölnir 2 -  4 Selfoss

Hvernig fannst þér frammistaða þinna manna vera í dag heilt yfir?

Okkur leið mjög vel í dag. Mér fannst spilamennskan án boltans og með hann mjög góð. Við vorum sprækir í dag, þetta var liðssigur.

Þið voruð öflugir í föstum leikatriðum í dag, er það ekki eitthvað sem þið leggið áherslu á, vannst ekki leikurinn einmitt á föstum leikatriðum?

Við reynum að styrkja okkur í öllu á æfingum. Stundum erum við heppnir og stundum ekki. Í dag gekk vel en við fengum líka tvö mörk á okkur sem er ekki gott. En í dag var kveikt á okkur og ég fann í dag að við getum farið út á völl og unnið fótboltaleik.

Þínir leikmenn sýndu mikla ástríðu í dag og þú varst einnig líflegur á hliðarlínunni, þessi sigur skipti ykkur gífarlega miklu máli er það ekki?

Allir leikir skipta miklu máli fyrir okkur. Við æfum vel alla daga til þess að fara út á völl og ná í úrslit. Stundum tekst það og stundum ekki. Í dag sá maður mikla ástríðu og mikið hugrekki hjá okkar mönnum.“

Þorsteinn Aron var ekki með í hóp í dag, er hann á förum?

Nei hann er ekki að fara. Hann er meiddur.  Oskar kom inn fyrir hann í dag og stóð sig eins og hetja líkt og allir hinir. Ég vill hafa hann inni í liðinu en það var ekki hægt í dag. En þetta er ekkert alverlegt. Við vildum bara ekki taka neina sénsa á þessum tímapunkti. Það er líka nóg af leikjum eftir og við þurfum á öllum hópnum að halda.

Hvernig lýst þér á næst leik sem er Ægir á heimavelli þegar þið náðuð loksins að tengja saman tvo sigra?

Já það er mjög gott að ná að tengja saman tvo sigra. Ég er ekki búinn að melta þennan leik. Eina sem skipti máli var að allir komu heilir út úr þessum leik.“

Gummi Tyrfings átti stórkostlegan leik í dag en hann lagði upp þrjú mörk, þú hlýtur að vera ánægður með hann?

Já hann var mjög flottur eins og allir hinir. Gummi er búinn að vera frábær á þessu tímabili og maður sér þessa ástríðu í honum. Hann vill gera vel og það var kveikt á honum í dag. Hann er Selfyssingur og maður sér ástríðuna í honum.“

Er partý í klefanum núna?

Nei, það er leikur á miðvikurdaginn.“ sagði Dean Martin, þjálfari Selfossar, eftir 4-2 sigur á Fjölni í dag.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Athugasemdir
banner
banner