Elísabet Gunnarsdóttir og stöllur hennar í belgíska kvennalandsliðinu gerðu aftur jafntefli við Skotland í undankeppni heimsmeistaramótsins í kvöld.
Þjóðirnar gerðu 1-1 jafntefli á dögunum þar sem Skotar náðu jöfnunarmarki undir lok leiks, en í kvöld enduðu leikar 0-0 á heimavelli Belga.
Staðan er þannig að Skotland og Belgía eru jöfn að stigum í D-riðli B-deildar með 8 stig, en Skotar með betri markatölu.
Markatalan mun líklega skipta gríðarlega miklu máli í þessum riðli, en Belgía mætir Lúxemborg í tveimur leikjum í júní.


