Newcastle hefur áhuga á að fá David de Gea, fyrrum markvörður Man Utd, í sínar raðir.
Newcastle er í markvarðarleit en það er ólíklegt að Aaron Ramsdale verði áfram eftir að lánssamningi hans frá Southampton lýkur. Þá hefur Nick Pope misst sætið sitt í byrjunarliðinu.
Íþróttafréttamaðurinn Alan Nixon greinir frá því að Newcastle ætli að heyra hljóðið í De Gea sem gekk til liðs við Fiorentina árið 2024 en hann hafði verið án félags í ár eftir að hafa yfirgefið United.
De Gea skrifaði undir eins ár samning við ítalska félagið en hann hefur framlengt hann til ársins 2028. Þá er hann kominn með fyrirliðabandið.

