Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   sun 19. apríl 2026 19:35
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikar kvenna: Markaveislur um land allt - Setti fernu í Þróttheimum
Emma Sóley skoraði fernu fyrir KÞ
Emma Sóley skoraði fernu fyrir KÞ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikarmeistararnir í Fylki lögðu Gróttu
Lengjubikarmeistararnir í Fylki lögðu Gróttu
Mynd: Fylkir
Sex lið komust áfram í 2. umferð Mjólkurbikarsins í dag og var heldur betur blásið til markaveislu.

FHL slátraði Einherja, 7-1, í Fjarðabyggðarhöllinni. Abigail Steen, sem kom til félagsins á dögunum, skoraði tvö mörk.

Auður Ósk Kristjánsdóttir skoraði þrennu og Hildur Arna Ágústsdóttir tvö í 6-0 stórsigri Völsungs á Dalvík/Reyni á meðan Selma Dögg Þorsteinsson gerði tvö í 5-1 sigri ÍA á Fjölni.

Stevie Reynolds setti þrennu fyrir Selfoss sem vann Augnablik 7-1 og þá átti Emma Sóley Arnarsdóttir stórleik og skoraði fjögur mörk í 5-3 sigri KÞ á KFR.

Fylkir, sem vann C-deild Lengjubikarsins á dögunum, vann þá magnaðan 2-1 endurkomusigur á Gróttu á tekkVellinum.

Úrslit og markaskorarar:

FHL 7 - 1 Einherji
1-0 Abigail Rose Steen ('11 )
2-0 Anna Ragnhildur Viðarsdóttir ('36 )
3-0 Christa Björg Andrésdóttir ('44 )
3-1 Tinna Líf Kristinsdóttir ('54 )
4-1 Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir ('55 )
5-1 Abigail Rose Steen ('63 )
6-1 Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir ('65 )
7-1 Íris Ösp Gunnarsdóttir ('86 )

Völsungur 6 - 0 Dalvík/Reynir
1-0 Auður Ósk Kristjánsdóttir ('14 )
2-0 Auður Ósk Kristjánsdóttir ('16 )
3-0 Hildur Arna Ágústsdóttir ('35 )
4-0 Hildur Arna Ágústsdóttir ('38 )
5-0 Auður Ósk Kristjánsdóttir ('45 )
6-0 Hildur Laila Hákonardóttir ('90 )

ÍA 5 - 1 Fjölnir
0-1 Marta Björgvinsdóttir ('11 )
1-1 Selma Dögg Þorsteinsdóttir ('49 )
2-1 Lilja Björg Ólafsdóttir ('62 )
3-1 Selma Dögg Þorsteinsdóttir ('66 )
4-1 Ísabel Jasmín Almarsdóttir ('73 )
5-1 Sigrún Eva Sigurðardóttir ('89 )

Selfoss 7 - 1 Augnablik
1-0 Stevie Madonna Reynolds ('8 )
2-0 Juliana Marie Paoletti ('14 )
3-0 Embla Dís Gunnarsdóttir ('15 )
4-0 Védís Ösp Einarsdóttir ('41 )
5-0 Stevie Madonna Reynolds ('43 )
6-0 Hildur Eva Bragadóttir ('51 )
7-0 Stevie Madonna Reynolds ('61 )
7-1 Andrea Katrín Ólafsdóttir ('78 , Own goal)

KÞ 5 - 2 KFR
1-0 Hildur Hekla Elmarsdóttir ('12 )
2-0 Emma Sóley Arnarsdóttir ('25 )
2-1 Fanndís Lilja Lárusdóttir ('42 )
3-1 Emma Sóley Arnarsdóttir ('55 )
3-2 Kristín Sóldís Ólafsdóttir ('56 )
4-2 Emma Sóley Arnarsdóttir ('82 )
5-2 Emma Sóley Arnarsdóttir ('90 )

Fylkir 2 - 1 Grótta
0-1 María Lovísa Jónasdóttir ('3 )
1-1 Eva Stefánsdóttir ('58 )
2-1 Birta Margrét Gestsdóttir ('65 )
Slapp
banner