Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
banner
   sun 19. apríl 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Allt undir í stærsta leik ársins
Úr leik liðanna í úrslitum enska deildarbikarsins
Úr leik liðanna í úrslitum enska deildarbikarsins
Mynd: EPA
Stærsti leikur tímabilsins er spilaður á Etihad-leikvanginum er Manchester City tekur á móti Arsenal í 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Arsenal er með sex stiga forystu á Man City í titilbaráttunni, sem á þó leik til góða.

Ef Man City tekst að vinna Arsenal mun titilbaráttan opnast upp á gátt, en takist Arsenal að vinna er titilbaráttunni svo gott sem lokið.

Leikurinn er spilaður klukkan 15:30 og í beinni útsendingu á Sýn Sport.

Borgarslagur Everton og Liverpool fer fram klukkan 13:00. Liverpool er úr öllum keppnum og stefnir nú að því að ná Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð, en Everton á einnig möguleika á að komast þangað. Það má því eins og alltaf búast við hörkuleik í þessum erkifjendaslag.

Aston Villa tekur á móti Sunderland á Villa Park og þá spilar fallbaráttulið Nottingham Forest við Burnley á City Ground.

Leikir dagsins:
13:00 Nott. Forest - Burnley
13:00 Everton - Liverpool
13:00 Aston Villa - Sunderland
15:30 Man City - Arsenal
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner