Slúðurpakki dagsins er kominn í hús. Morgan Rogers, Curtis Jones, Jose Mourinho, Alvaro Arbeloa og fleiri koma við sögu.
Morgan Rogers, leikmaður Aston Villa, er á óskalista Bayern Munchen en Chelsea og Man Utd eru einnig á eftir þessum 23 ára gamla sóknarmanni. (Football Insider)
Curtis Jones, 25, miðjumaður Liverpool, er að yfirgefa félagið í sumar en Aston Villa hefur áhuga. (Teamtalk)
Tino Livramento, varnarmaður Newcastle, er efstur á óskalista Man City en félagið er einnig að skoða aðra möguleika. (Teamtalk)
Real Madrid íhugar að ráða Jose Mourinho, stjóra Benfica, aftur til féelagsins. (Record)
Real Madrid mun taka ákvörðun um framtíð stjórans Alvaro Arbeloa eftir tímabilið. (Marca)
Real Madrid er að skipuleggja miklar breytingar á hópnum í sumar og Eduardo Camavinga, 23, mun mögulega yfirgefa félagið. (Sport)
Eftir að Coventry tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni er ljóst að Frank Onyeka, 28, lánsmaður frá Brentford er alfarið genginn til liðs við Coventry. (Talksport)
Lorient íhugar að ráða Will Still, fyrrum stjóra Lens og Southampton, sem næsta stjóra liðsins. (L'Equipe)
Aureli de Laurentiis, forseti Napoli, hefur flýtt fundi með Antonio Conte til að ræða framtíð hans þar sem hann er orðaður við ítalska landsliðið. (Corriere dello Sport)


