Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   mán 20. apríl 2026 00:02
Brynjar Ingi Erluson
„Myndi frekar lesa bók en að glíma við Gabriel og Saliba“
Mynd: EPA
Spænski stjórinn Pep Guardiola öfundaði Erling Braut Haaland ekkert sérstaklega mikið í sigrinum á Arsenal í kvöld.

Haaland þurfti eins og svo oft áður að berjast við varnarmennina Gabriel og William Saliba í leiknum.

Baráttan var mögnuð. Leikmennirnir voru togandi í hvorn annan allan leikinn og á endanum sauð allt upp úr sem endaði með atviki sem þótti afar umdeilt.

Gabriel og Haaland fóru haus í haus, en Gabriel setti hausinn fram sem City-menn voru óánægðir með og kölluðu eftir rauðu spjaldi en Anthony Taylor gaf í staðinn báðum leikmönnum gula spjaldið.

Guardiola var spurður út í þessa baráttu sem Haaland háði við varnarmennina enda eru þeir félagarnir ansi harðir í horn að taka.

„Ég væri ekki til í að vera Haaland og berjast gegn Gabriel og Saliba. Ég væri frekar til í að lesa bók.“

„Bara alls ekki. Bara að eiga við þessa gaura og hvernig þeir gera hlutina og hvernig hann meðhöndlaði þetta. Mjög vel gert hjá honum,“
sagði Guardiola við CityXtra.

Hér fyrir neðan má síðan sjá viðbrögð Guardiola og Arteta í kringum atvikið á 83. mínútu, en Guardiola sturlaðist og kallaði eftir rauðu spjaldi á meðan Arteta virkaði afar áhyggjufullur.

Sjáðu viðbrögð Arteta og Guardiola
Slapp
banner
banner
banner