Róbert Frosti Þorkelsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir GAIS þegar hann jafnaði metin í 1-1 gegn Hacken í 3. umferð sænsku deildarinnar í dag. Leiknum lauk með 2-1 tapi. GAIS er án stiga á botninum.
Óttar Magnús Karlsson var á skotskónum í 3-3 jafntefli Renate gegn Trento í næst síðustu umferð ítölsku C-deildarinnar, það er ljóst að liðið fer í umspil um sæti í B-deildinni. Kristófer Jónsson var í byrjunarliði Triestina sem tapaði 3-0 gegn AlbinoLeffe en liðið er fallið.
Sigurður Bjartur Hallsson var í byrjunarliði AD Merida sem vann Arenteiro 2-0 í spænsku C-deildinni. Merida er í 9. sæti með 48 stig.
Kolbeinn Finnsson var í byrjunarliði Valerenga sem tapaði 2-0 gegn Lilleström í 5. umferð norsku deildarinnar. Valerenga er með 7 stig í 5. sæti.
Logi Tómasson spilaði allan leikinn í frábærum 2-1 sigri Samsunspor gegn Besiktas í tyrknesku deildinni. Samsunspor er í 7. sæti með 42 stig eftir 30 umferðir.

