Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   sun 19. apríl 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Forseti Real Madrid ætlar að funda með Mourinho
Snýr Mourinho aftur til Real Madrid?
Snýr Mourinho aftur til Real Madrid?
Mynd: EPA
Florentino Perez, forseti Real Madrid, ætlar að funda með portúgalska þjálfaranum Jose Mourinho varðandi þjálfarastöðu spænska félagsins á næstu vikum en þetta segir portúgalski miðillinn Record.

Madrídingar fengu Alvaro Arbeloa til að taka við til bráðabirgða eftir að Xabi Alonso var rekinn.

Arbeloa hefur engan veginn staðist væntingar og mun hann ekki halda starfinu eftir tímabilið.

Record segir Mourinho líklegan til að snúa aftur á Santiago Bernabeu í sumar og að Perez sé að undirbúa fund með þjálfaranum.

Mourinho er þjálfari Benfica í Portúgal en hann er sagður opinn fyrir hugmyndinni að snúa aftur.

Hann þjálfaði Real Madrid frá 2010 til 2013 og vann þrjá titla áður en hann var látinn fara aðeins ári eftir að hafa framlengt samning sinn til 2016.

Perez er að skoða nokkur nöfn en Zinedine Zidane, Jürgen Klopp, Mauricio Pochettino, Didier Deschamps og Lionel Scaloni eru allir á listanum. Zidane er ólíklegur enda er hann sagður taka við franska landsliðinu af Deschamps í sumar og þá hefur Klopp nánast útilokað að taka við starfinu.
Slapp
banner
banner
banner