Manchester City er líklegast til þess að vinna ensku úrvalsdeildina á þessu tímabili ef marka má veðbankann EpicBet.
Arsenal hefur verið á toppnum í deildinni í 197 daga á þessu tímabili og fór inn í lokakaflann með níu stiga forystu.
Í síðasta mánuði voru 91 prósent líkur á því að Arsenal tæki Englandsmeistaratitilinn en það hefur heldur betur breyst á síðustu dögum og þá sérstaklega eftir 2-1 tap liðsins gegn Manchester City í kvöld.
Sigurinn þýðir að City er aðeins þremur stigum á eftir Arsenal og á leik til góða sem er spilaður gegn Burnley á miðvikudag, en þá getur City komist í toppsætið á markatölu.
Veðbankar telja City nú líklegast til að vinna titilinn, en á EpicBet er stuðullinn 1,72 á Man City á meðan Arsenal fær 2,25 í stuðul.
Veðbankar taka inn alls konar þætti þegar það kemur að titilbaráttu og sýnir sagan það að það er aldrei hægt að afskrifa City fyrr en möguleikinn er horfinn á blaði.
Leikir Arsenal:
Newcastle (Heima) - 25. apríl
Fulham (Heima) - 2. maí
West Ham (Úti) - 10. maí
Burnley (Heima) - 17. maí
Crystal Palace (Úti) - 24. maí
Leikir Man City:
Burnley (Úti) - 22. apríl
Everton (Úti) - 4. maí
Brentford (Heima) - 9. maí
Bournemouth (Úti) - 17. maí
Crystal Palace (Heima) - Dagsetning ekki ákveðin (22. maí líklegt)
Aston Villa (Heima) - 24. maí


