Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 13:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Fimmta jafntefli Brentford í röð
Mynd: EPA
Brentford 0 - 0 Fulham

Brentford fékk Fulham í heimsókn í fyrsta leik helgarinnar í úrvalsdeildinni.

Fulham var meira með boltann í fyrri hálfleik en Brentford fékk betri færi. Besta færi fyrri hálfleiksinis kom í blálokin þegar Keane Lewis-Potter kom sér í góða stöðu inn á teignum en skotið vel yfir markið.

Liðin virtust vera sætta sig við jafntefli en Brentford sótti í sig veðrið í lokin. Lewis-Potter var nálægt því að skora þegar hann skallaði boltann að marki en Igor Thiago var fyrir og markahrókurinn kom í veg fyrir að sínir menn náðu forystunni.

Stuttu síðar fékk Dango Ouattara langbesta færi leiksins þegar hann kom boltanum á markið af stuttu færi en Bernd Leno bjargaði stórkostlega.

Markalaust jafntefli var niðurstaðan er Brentford er áfram í 7. sæti nú með 48 stig eins og Chelsea sem er i 6. sæti. Fulham er í 12. sæti með 45 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 49 49 0 48
9 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
10 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
11 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 33 12 6 15 45 48 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 41 49 -8 39
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 60 -36 17
Slapp
banner