Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   sun 19. apríl 2026 22:11
Brynjar Ingi Erluson
Frakkland: Óvænt tap PSG - Endrick allt í öllu
Endrick skoraði og lagði upp í sigri á PSG
Endrick skoraði og lagði upp í sigri á PSG
Mynd: EPA
Frönsku meistararnir í Paris Saint-Germain misstigu sig óvænt í titilbaráttunni er liðið lá fyrir Lyon, 2-1, á Parc des Princes í kvöld.

PSG gat komið sér í góð mál á toppnum en hrikaleg byrjun á leiknum kom í veg fyrir það.

Brasilísumaðurinn Endrick skoraði og lagði upp fyrir Lyon á fyrstu átján mínútunum.

Goncalo Ramos, framherji PSG, klikkaði á víti á 33. mínútu áður en Vitinha fór meiddur af velli undir lok fyrri hálfleiks. Luis Enrique var með nokkra lykilmenn á bekknum en kynnti þá til sögunnar þegar hálftími var eftir.

Georgíski vængmaðurinn Khvicha Kvaratskhelia var einn af varamönnum PSG, en hann minnkaði muninn í uppbótartíma eftir stoðsendingu frá Fabian Ruiz.

Lengra komst PSG ekki sem er enn á toppnum með 63 stig eftir 28 leiki og á enn leik til góða á Lens sem er í öðru sæti með 62 stig. Lyon er á meðan í 4. sæti með 54 stig og lifir Meistaradeildardraumurinn góðu lífi þegar fjórar umferðir eru eftir.

Úrslit og markaskorarar:

Metz 1 - 3 Paris FC
0-1 Alimami Gory ('21 )
1-1 Giorgi Kvilitaia ('31 )
1-2 Otavio ('69 )
1-3 Ilan Kebbal ('89 )

Strasbourg 0 - 3 Rennes
0-1 Esteban Lepaul ('20 )
0-2 Breel Embolo ('50 )
0-3 Mousa Tamari ('52 )

Paris Saint Germain 1 - 2 Lyon
0-1 Endrick ('6 )
0-2 Afonso Moreira ('18 )
0-2 Goncalo Ramos ('33 , Misnotað víti)
1-2 Khvicha Kvaratskhelia ('90 )

Nantes 1 - 1 Brest
1-0 Mostafa Mohamed ('9 )
1-1 Brendan Chardonnet ('90 )
Rautt spjald: Dehmaine Tabibou, Nantes ('65)

Monaco 2 - 2 Auxerre
0-1 Kevin Danois ('11 )
0-2 Lassine Sinayoko ('33 )
1-2 Ansu Fati ('56 )
2-2 Folarin Balogun ('59 , víti)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner