Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 20:08
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Verðmiði Diomande hækkar og hækkar
Yan Diomande gerði frábært mark fyrir Leipzig
Yan Diomande gerði frábært mark fyrir Leipzig
Mynd: EPA
Eintracht Frankfurt 1 - 3 RB Leipzig
0-1 Yan Diomande ('27 )
1-1 Hugo Larsson ('34 )
1-2 Antonio Nusa ('70 )
1-3 Conrad Harder ('81 )

RB Leipzig vann fjórða deildarleikinn í röð er liðið bar sigur úr býtum gegn Eintracht Frankfurt, 3-1, á Deutsche Bank-leikvanginum í Frankfurt í dag.

Liðið hefur verið að spila frábæran bolta undir Ole Werner á tímabilinu og færist nær því að tryggja Meistaradeildarsæti fyrir næsta tímabil.

Hinn eftirsótti Yan Diomande kom Leipzig í forystu á 27. mínútu með geggjuðu marki. Hann keyrði af hægri vængnum, fór framhjá nokkrum leikmönnum áður en hann mundaði skotfótinn og stýrði boltanum neðst í hægra hornið. Tólfta mark hans í deildinni og hefur hann alls komið að nítján mörkum í 29 leikjum. Verðmiðinn hækkar og hækkar, en öll stærstu félög Evrópu hafa fylgst náið með honum síðustu mánuði.

Svíinn Hugo Larsson jafnaði sjö mínútum síðar en Leipzig náði að gera út um leikinn á ellefu mínútum í síðari hálfleiknum. Norðmaðurinn Antonio Nusa kom þeim yfir á 70. mínútu og þá gerði danski leikmaðurinn Conrad Harder þriðja markið á 81. mínútu.

Leipzig er í þriðja sæti með 59 stig en Frankfurt í 7. sæti með 42 stig þegar fjórar umferðir eru eftir. Frankfurt getur gleymt möguleikanum á Evrópusæti á næstu leiktíð en Leipzig er að minnsta kosti öruggt með Sambandsdeildarsæti.


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 29 24 4 1 105 27 +78 76
2 Dortmund 30 19 7 4 61 31 +30 64
3 RB Leipzig 30 18 5 7 59 37 +22 59
4 Stuttgart 29 17 5 7 60 38 +22 56
5 Hoffenheim 30 16 6 8 59 44 +15 54
6 Leverkusen 30 15 7 8 60 41 +19 52
7 Frankfurt 30 11 9 10 55 57 -2 42
8 Freiburg 29 11 7 11 42 47 -5 40
9 Augsburg 30 10 6 14 38 54 -16 36
10 Mainz 29 8 9 12 35 44 -9 33
11 Union Berlin 30 8 8 14 34 52 -18 32
12 Köln 30 7 10 13 44 51 -7 31
13 Hamburger 30 7 10 13 33 48 -15 31
14 Werder 30 8 7 15 35 53 -18 31
15 Gladbach 29 7 9 13 35 49 -14 30
16 St. Pauli 30 6 8 16 26 51 -25 26
17 Wolfsburg 30 6 6 18 41 66 -25 24
18 Heidenheim 29 4 7 18 32 64 -32 19
Slapp