Andri Fannar Baldursson var í byrjunarliði Kasimpasa sem vann Alanyaspor í tyrknesku deildinni í dag.
Irfan Can Kahveci skoraði eina mark leiksins beint úr hornspyrnu. Kasimpasa er í 13. sæti með 31 stig og er sex stigum frá fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir.
Irfan Can Kahveci skoraði eina mark leiksins beint úr hornspyrnu. Kasimpasa er í 13. sæti með 31 stig og er sex stigum frá fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir.
Brynjar Ingi Bjarnason sat allan tímann á bekknum þegar Greuther Furth vann dramatískan 3-2 sigur á Darmstadt í næst efstu deild í Þýskalandi en sigurmarkið kom seint í uppbótatíma. Liðið stökk upp úr fallsæti og er í 14. sæti með 33 stig, tveimur stigum frá fallsæti.
Daníel Freyr Kristjánsson spilaði 72 mínútur þegar Fredericia náði í dramatískt jafntefli gegn Silkeborg í dönsku deildinni. Fredericia jafnaði metin í 2-2 í uppbótatíma. Fredericia er í 10. sæti með 29 stig, tveimur stigum á undan Silkeborg sem er í fallsæti.



