Staðarmiðillinn í Manchester-borg, Manchester Evening News valdi Nico O'Reilly besta mann leiksins í 2-1 sigri Manchester City á Arsenal í kvöld.
O'Reilly var frábær, bæði varnarlega og sóknarlega, og er að sanna sig sem einn af bestu leikmönnum deildarinnar. Hann lagði upp sigurmarkið og skilaði enn og aftur stórkostlegri frammistöðu.
Hann fær 9 í einkunn, en þeir Erling Haaland, Rayan Cherki, Bernardo Silva, Rodri og Abdukodir Khusanov fengu 8. Gianluigi Donnarumma gerði hrikaleg mistök snemma leiks, en náði að svara fyrir það með góðum vörslum í seinni hálfleik.
Football.London gaf leikmönnum Arsenal einkunnir, en þeir Gabriel, Noni Madueke og David Raya voru lægstir með 5.
Man City: Donnarumma (6), Nunes (7), Khusanov (8), Guehi (7), O'Reilly (9), Silva (8), Rodri (8), Semenyo (6), Cherki (8), Doku (7), Haaland (8).
Arsenal: Raya (5), Mosquera (7), Saliba (7), Gabriel (5), Hincapie (7), Zubimendi (7), Rice (6), Ödegaard (6), Madueke (5), Havertz (7), Eze (7).
Varamenn: Martinelli (5), White (4), Trossard (6), Gyökeres (4).


