Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   sun 19. apríl 2026 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Einkunnir Everton og Liverpool: Salah bestur í sínum síðasta grannaslag
Mynd: EPA
Sky Sports valdi Mohamed Salah mann leiksins í fyrsta borgarslagnum á Hill Dickinson vellinum þar sem Liverpool vann dramatískan sigur á Everton. Það er ljóst að þetta var síðasti grannaslagurinn hans þar sem hann yfirgefur félagið eftir tímabilið.

Salah kom Liverpool yfir en hann fær sjö í einkunn eins og fjórir aðrir leikmenn, m.a. Virgil van Dijk sem skoraði sigurmarkið á 100. mínútu.

Alexander Isak var hins vegar týndur í öðrum byrjunarliðsleiknum sínum í röð eftir meiðsli og fær aðeins fjóra í einkunn.

Beto skoraði mark Everton og fær sjö ásamt fimm öðrum leikmönnum liðsins

Everton: Pickford (6), O'Brien (6), Tarkowski (6), Branthwaite (7), Mykolenko (6), Gueye (7), Garner (7), McNeil (6), Dewsbury-Hall (7), Ndiaye (7), Beto (7).
Varamenn: Barry (6), George (6), Keane (6).

Liverpool: Mamardashvili (7), Szoboszlai (7), Konate (5), Van Dijk (7), Robertson (6), Gravenberch (6), Jones (6), Wirtz (5), Salah (7), Isak (4), Gakpo (7).
Varamenn: Woodman (6), Ngumoha (6), Frimpong (6), Mac Allister (6), Kerkez (6).
Slapp
banner
banner