Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   lau 18. apríl 2026 16:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Mikilvægur sigur Leeds - Wolves gæti fallið í kvöld
Mynd: EPA
Það var spennandi leikur í fallbaráttunni í dag þegar Leeds fékk Wolves í heimsókn.

Leeds var með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik og komst yfir þegar James Justin skoraði laglegt með bakfallsspyrnu af stuttu færi.

Strax í kjölfarið vann Brenden Aaronson boltann á miðjunni og sendi á Noah Okafor sem tvöfaldaði forystu Leeds. Hann hefur komið að fjórum mörkum í síðustu þremur leikjum.

Wolves var nálægt því að minnka muninn eftir klukkutíma leik en Karl Darlow varði frábærlega frá Ladislav Krejci. Dominic Calvert-Lewin innsiglaði öruggan sigur Leeds með marki úr vítaspyrnu í lokin.

Leeds er níu stigum frá fallsæti en Wolves gæti fallið ef Tottenham vinnur Brighton í kvöld.

Marcus Tavernier kom Bournemouth yfir gegn Newcastle þegar hann skoraði af stuttu færi. Bournemouth var mun betri aðlinn í fyrri hálfleik en staðan var enn 1-0 þegar flautað var til hálfleiks.

Newcastle náði að jafna metin þegar William Osula setti boltann í netið. Markið var dæmt af þar sem Osula var rangstæður en boltinn fór af Evanilson og markið var því að lokum dæmt gilt.

Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma skoraði Adrien Truffert af stuttu færi eftir að Evanilson skallaði boltann fyrir hann og tryggði Bournemouth sigurinn.

Bournemouth er í 8.sæti með 48 stig. Newcastle er í 14. sæti með 42 stig.

Leeds 3 - 0 Wolves
1-0 James Justin ('18 )
2-0 Noah Okafor ('20 )
3-0 Dominic Calvert-Lewin ('90 , víti)

Newcastle 1 - 2 Bournemouth
0-1 Marcus Tavernier ('32 )
1-1 William Osula ('68 )
1-2 Adrien Truffert ('85 )
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 24 7 5 68 26 +42 79
2 Man City 36 22 9 5 72 32 +40 75
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 36 17 8 11 50 46 +4 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 36 13 10 13 46 46 0 49
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 36 13 7 16 50 52 -2 46
14 Crystal Palace 36 11 12 13 38 44 -6 45
15 Leeds 36 10 14 12 48 53 -5 44
16 Nott. Forest 36 11 10 15 45 47 -2 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 36 9 9 18 42 62 -20 36
19 Burnley 36 4 9 23 37 73 -36 21
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner
banner
banner