Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   sun 19. apríl 2026 17:38
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Bayern meistari í 35. sinn
Bayern vann deildina annað árið í röð
Bayern vann deildina annað árið í röð
Mynd: EPA
Bayern München varð í dag Þýskalandsmeistari í 35. sinn eftir að hafa unnið 4-2 sigur á Stuttgart á Allianz-leikvanginum. Þetta er þá annað árið í röð sem liðið vinnur titilinn.

Bæjarar þurftu aðeins stig til þess að tryggja titilinn en gerðu gott betur en það.

Þeir byrjuðu ekkert frábærlega. Chris Fuhrich kom gestunum yfir á 21. mínútu, en eftir það gerðu Bæjarar nokkuð þægilega út um leikinn.

Raphael Guerreiro jafnaði á 31. mínútu og tveimur mínútum síðar kom senegalski framherjinn Nicolas Jackson þeim yfir. Alphonso Davies var næstur í röðinni áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Harry Kane kom inn af bekknum í hálfleik og skoraði fjórða markið á 52. mínútu sem var 32. deildarmark hans á tímabilinu.

Spánverjinn Chema Andres minnkaði muninn fyrir Stuttgart, en það skemmdi ekki fagnaðarhöldin fyrir Bayern sem vann 4-2 og fagnaði 35. deildarmeistaratitlinum.

Aldrei í hættu hjá Bayern sem hefur átt ótrúlegt tímabil undir stjórn Vincent Kompany. Liðið setti nýtt markamet í deildinni á dögunum, er komið í undanúrslit bæði bikar og Meistaradeild, og virðist liðið líklegt til þess að taka þrennuna þetta árið.

Freiburg vann þá botnlið Heidenheim, 2-1. Max Eggestein gerði sigurmarkið á 83. mínútu sem nánast staðfesti fall Heidenheim niður í B-deildina.

Það er tólf stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir.

Úrslit og markaskorarar:

Bayern 4 - 2 Stuttgart
0-1 Chris Fuhrich ('21 )
1-1 Raphael Guerreiro ('31 )
2-1 Nicolas Jackson ('33 )
3-1 Alphonso Davies ('37 )
4-1 Harry Kane ('52 )
4-2 Chema Andres ('89 )

Freiburg 2 - 1 Heidenheim
1-0 Johan Manzambi ('24 )
1-1 Budu Zivzivadze ('58 )
2-1 Maximilian Eggestein ('83 )
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 34 28 5 1 122 36 +86 89
2 Dortmund 34 22 7 5 70 34 +36 73
3 RB Leipzig 34 20 5 9 66 47 +19 65
4 Stuttgart 34 18 8 8 71 49 +22 62
5 Hoffenheim 34 18 7 9 65 52 +13 61
6 Leverkusen 34 17 8 9 68 47 +21 59
7 Freiburg 34 13 8 13 51 57 -6 47
8 Frankfurt 34 11 11 12 61 65 -4 44
9 Augsburg 34 12 7 15 45 61 -16 43
10 Mainz 34 10 10 14 44 53 -9 40
11 Union Berlin 34 10 9 15 44 58 -14 39
12 Gladbach 34 9 11 14 42 53 -11 38
13 Hamburger 34 9 11 14 40 54 -14 38
14 Köln 34 7 11 16 49 63 -14 32
15 Werder 34 8 8 18 37 60 -23 32
16 Wolfsburg 34 7 8 19 45 69 -24 29
17 Heidenheim 34 6 8 20 41 72 -31 26
18 St. Pauli 34 6 8 20 29 60 -31 26
Slapp
banner