Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   sun 19. apríl 2026 17:27
Brynjar Ingi Erluson
England: Haaland hetjan gegn Arsenal og titilbaráttan galopin
Erling Braut Haaland tók klassíska fagnið sitt
Erling Braut Haaland tók klassíska fagnið sitt
Mynd: EPA
Úr leiknum í dag
Úr leiknum í dag
Mynd: EPA
Rayan Cherki skoraði frábært mark og starði síðan á stuðningsmenn Arsenal
Rayan Cherki skoraði frábært mark og starði síðan á stuðningsmenn Arsenal
Mynd: EPA
Manchester City 2 - 1 Arsenal
1-0 Rayan Cherki ('16 )
1-1 Kai Havertz ('18 )
2-1 Erling Haaland ('65 )

Manchester City vann frábæran 2-1 sigur á Arsenal í stórleik tímabilsins á Etihad-leikvanginum í dag, en það var Erling Braut Haaland sem opnaði titilbaráttuna upp á gátt með sigurmarki tæpum hálftíma fyrir leikslok.

City-menn vissu það fyrir leikinn að sigur kæmi þeim í góða stöðu í titilbaráttunni.

Rayan Cherki opnaði leikinn á 16. mínútu leiksins er hann dansaði í gegnum vörn Arsenal og setti boltann neðst í vinstra hornið. Stórkostleg tilþrif hjá Frakkanum sem er að reynast ein bestu kaup tímabilsins, en hræðileg mistök Gianluigi Donnarumma jafnaði stöðuna á 18. mínútu.

Donnarumma tók á móti boltanum eftir innkast og tók auka snertingu. Kai Havertz fór í hápressu og náði að komast fyrir hreinsun ítalska markvarðarins og skaust boltinn þaðan efst í hægra hornið. Skelfilegt hjá Donnarumma og leikurinn orðinn jafn.

City var líklegra restina af fyrri hálfleiknum en skapaði sér samt ekki mörg opin færi. Antoine Semenyo átti ágætis tilraun og þá átti Haaland skot framhjá markinu.

Staðan í hálfleik 1-1 en í þeim síðari fór að færast meira fjör í leikinn.

Heimamenn komu sér í tvö ágætis færi. Fyrst átti Haaland skot framhjá markinu og síðan skaut Jeremy Doku boltanum beint á Raya.

Arsenal gat skorað tvö mörk með tveggja mínútna millibili en var óheppið að taka ekki forystuna. Fyrst var það Havertz sem fékk sendingu í gegn eftir frábæra sókn en Donnarumma sá við honum og þá náðu þeir ekki að nýta frákastið. Stuttu síðar átti Eberechi Eze skot sem hafnaði í stönginni og skoppaði út.

Á 65. mínútu leiksins tókst City að skora sigurmarkið. Donnarumma kastaði löngum bolta fram á Nico O'Reilly sem fann Doku vinstra megin áður en hann fékk aftur boltann, setti hann fyrir markið þar sem Rodri reyndi við skotið, en hitti ekki boltann. Haaland var hins vegar mættur eins og hrægammur, teygði sig í boltann og stýrði honum í vinstra hornið.

Risastórt mark í titilbaráttunni og hafði hann þarna betur við Gabriel eftir að hafa glímt við Brasilíumanninn allan leikinn.

Arsenal var nálægt jöfnunarmarki á 73. mínútu er aukaspyrna fór af O'Reilly og í stöngina áður en Havertz setti frákastið í Donnarumma.

Hiti færðist í leikinn á lokamínútunum. Haaland fékk sig fullsaddan af fantabrögðum Gabriel og fór haus í haus við varnarmanninn, sem að hálfpartinn skallaði Haaland, en í stað þess að gefa rautt gaf hann báðum gula spjaldið.

Á lokamínútunni fengu Arsenal-menn færi til þess að jafna leikinn er Leandro Trossard kom með boltann inn á teiginn en Havertz, sem var dauðafrír, skallaði boltann yfir markið.

Lærisveinar Pep Guardiola héldu þetta út á Etihad og unnu gríðarlega mikilvægan sigur í titilbaráttunni. Man City er áfram í öðru sæti, en nú með 67 stig, aðeins þremur á eftir Arsenal og á leik til góða.

Það stefnir því allt í svakalega titilbaráttu um Englandsmeistaratitilinn en auðvitað nóg af leikjum eftir og margt sem á eftir að gerast áður en tímabilið verður flautað af.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner