Það er dramatik í borgarslagnum í Liverpool þar sem Liverpool er í heimsókn hjá Everton í fyrsta borgarslagnum á Hill Dickinson vellinum.
Þegar 27 mínútur voru liðnar af leiknum virtist Iliman Ndiaye vera koma Everton yfir en markið var dæmt af þar sem Jake O'Brien var rangstæður í aðdragandanum.
Aðeins tveimur mínútum síðar kom Mohamed Salah yfir í sínum síðasta borgarslag.
Cody Gakpo átti frábæra sendingu inn fyrir vörn Everton og eftirleikurinn var mjög auðveldur fyrir Salah.
Sjáðu markið hér


