Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
banner
   sun 19. apríl 2026 22:00
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikar kvenna: ÍR kláraði Álftanes í lokin
ÍR er komið í aðra umferð bikarsins
ÍR er komið í aðra umferð bikarsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 2 - 0 Álftanes
1-0 Hólmfríður Þrastardóttir ('78 )
2-0 Ísabella Sif Elmarsdóttir ('80 )

ÍR er komið áfram í aðra umferð Mjólkurbikars kvenna eftir að hafa unnið Álftanes, 2-0, í Egilshöllinni í kvöld.

Hólmfríður Þrastardóttir og Ísabella Sif Elmarsdóttir skutu ÍR-ingum áfram með mörkum á tveimur mínútum undir lok leiksins.

Þær eru nú skrefi nær því að komast í 16-liða úrslitin, en ÍR mun mæta Tindastól í næstu umferð.

Leikurinn fer fram 26. apríl og er spilaður á Sauðárkróksvelli.
Slapp
banner
banner
banner