Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   sun 19. apríl 2026 15:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Salah: Vonandi get ég kvatt á réttan hátt
Mynd: EPA
Mohamed Salah ætlar að gera allt sem í sínu valdi stendur að tryggja Liverpool þátttökurétt í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Salah mun yfirgefa félagið þegar tímabilinu lýkur eftir magnaða tíma hjá enska liðinu. Hann kom liðinu á bragðið í dramatískum 2-1 sigri á grönnunum í Everton í dag.

„Aðalatriðið er að hjálpa liðinu að ná sjálfstrausti. Við vissum fyrir leikinn að þetta yrði snúið, þetta var alltaf að fara verða erfitt og ég er ánægður að við náðum að vinna," sagði Salah.

„Ég vil halda áfram að skora og hjálpa liðinu að komast í Meistaradeildina. Vonandi get ég kvatt á réttan hátt."

Salah hefur verið langt frá sínu besta á þessu tímabili en hann hefur komið að 20 mörkum í 37 leikjum í öllum keppnum.
Slapp
banner