Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   sun 19. apríl 2026 22:49
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: Skoraði þrennu er Hamar komst í úrslit - Auðvelt hjá Haukum
Haukar eru komnir í úrslit í B-deildinni
Haukar eru komnir í úrslit í B-deildinni
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Hamar spilar til úrslita í C-deildinni
Hamar spilar til úrslita í C-deildinni
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Haukar eru komnir í úrslit B-deildar Lengjubikars karla eftir góðan 4-1 sigur á Fjölni í dag. Hamar mun þá spila til úrslita í C-deildinni.

Daði Snær Ingason skoraði tvennu í sigri Hauka á Fjölni. Hann og Ísak Jónsson komu heimamönnum í 2-0 á rúmum tuttugu mínútum áður en Daði gerði annað mark sitt á 55. mínútu.

Árni Steinn Sigursteinsson klóraði í bakkann fyrir Fjölni á 69. mínútu áður en Gabríel Aron Sævarsson gerði út um leikinn fyrir Hauka um það bil þrettán mínútum síðar.

Haukar mæta Víkingi Ólafsvík í úrslitum á laugardag.

Hamar vann Álafoss 5-2 sigur í undanúrslitum C-deildarinnar, en þeir Brynjólfur Þór Eyþórsson og Heiðmar Trausti Elvarsson voru báðir með tvennu í leiknum.

Brynjólfur skoraði tvennu fyrir Hamar sem náði fjögurra marka forystu áður en Heiðmar minnkaði muninn með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla í síðari hálfleik.

Hamar spilar við Álftanes í úrslitaleiknum sem er líka settur á laugardag klukkan 14:00.

Haukar 4 - 1 Fjölnir
1-0 Daði Snær Ingason ('17 )
2-0 Ísak Jónsson ('21 )
3-0 Daði Snær Ingason ('55 )
3-1 Árni Steinn Sigursteinsson ('69 )
4-1 Gabríel Aron Sævarsson ('82 )

Álafoss 2 - 5 Hamar
0-1 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('1 )
0-2 Kristófer Örn Kristmarsson ('8 )
0-3 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('44 )
0-4 Sævin Máni Lýðsson ('58 )
1-4 Heiðmar Trausti Elvarsson ('72 )
2-4 Heiðmar Trausti Elvarsson ('75 )
2-5 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('80 )
Slapp
banner
banner